Inngangur

Í daglegu lífi skiptir hljóð okkur verulegu máli. Við eigum tjáskipti, hlustum á umhverfishljóð, tónlist eða hvaðeina sem að eyrum okkar berst. Hljóð í ljósvakamiðlum er burðarás þeirra miðla og færist í aukana að nota hljóð á vefsíðum, tónlistar- sem fréttasíðum. Því er nokkuð augljóst að hljóð er ákaflega mikilvægt.

Einn mikilvægasti þátturinn við hljóð er að það sé skýrt og berist vel. Það á ekki síst við um tal og þar eru fréttir og fræðsla mikilvægustu þættirnir. Það gefur auga leið að það verður að heyrast í fréttamönnum þannig að vel skiljist. Þá er ekki nóg að gera kröfu til fréttamanna eða þeirra sem fram koma heldur líka til tæknimanna sem taka upp hljóðið. Það er gríðarlega mikilvægt að vel takist til með upptökur. Það sama á við um tónlist, að taka upp tónlist er krefjandi, krefst mikillar reynslu, hæfni og ekki síst þekkingar.

Nám í hljóðvinnslu eða hljóðtækni hefur ekki verið í boði hér á landi hingað til. Fyrsti vísirinn að slíku námi var HLT101 áfanginn sem kenndur hefur verið í tengslum við upplýsingatækni í Tækniskóla Íslands.  Þeir sem hafa áhuga á að mennta sig á þessu sviði hafa gjarnan leitað erlendis og þá helst til London, en einnig til Bandaríkjanna og Norðurlanda. Það er dýrt og má sem dæmi nefna að SAE skólinn í London kostar tvær milljónir árið þegar þetta er skrifað.

Dr. Ágúst Einarsson hefur bent á það í ræðu og riti að tónlistariðnaðurinn skilar gríðarlegum fjármunum inn í þjóðarbúið.

Það er því augljóst að það er þjóðhagslega hagkvæmt að geta boðið upp á metnaðarfullt nám í hljóðtækni hér á landi sem mætti þróa í alþjóðlegt nám til að sækja nemendur erlendis frá. 

Hér á eftir fer námskrá sem samin hefur verið af Tækniskólanum í samstarfi við Sýrland.

Vinsamlegast athugið að námskráin getur hugsanlega tekið breytingum áður en námið hefst.